Do you want to translate non-english job information to English?
Kerecis
Kerecis
Kerecis

Verkfræðingur á framleiðslusviði

Verkfræðingur á framleiðslusviði er hluti af teymi sem ber ábyrgð á gildingu ferla, framleiðslubúnaði og þróun, ásamt því að veita víðtæka aðstoð við gæðamál. Starfið felur m.a. í sér söfnun og greiningu gagna, skrif á skýrslum, viðhaldi og uppfærslum ferla, ásamt því að tryggja að viðeigandi stöðlum og reglugerðum sé fylgt hverju sinni. Starfsmaðurinn vinnur náið með þverfaglegum teymum sem styðja við gildingar, uppsetningu ferla og búnaðs.

Starfsstaður er á skrifstofu Kerecis á Ísafirði og heyrir starfið undir deildarstjóra.

Hefur þú roð við okkur?

Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða og byggir tækni sína á hagnýtingu á roði og fitusýrum. Lækningavörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar líkamsskaða; m.a. á skurðsárum, þrálátum sárum, brunasárum, munnholssárum sem og til að flýta fyrir gróanda og að styrkja innvortis vef eftir skurðaðgerðir og slys.

Um 600 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í Reykjavík, Þýskalandi og í Bandaríkjunum.

Sáraroðið Kerecis á þátt í bata þúsunda einstaklinga um allan heim árlega.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umbætur á ferlum

  • Stuðningur við gæðamál í framleiðslu

  • Innleiðing á nýjum vörum og nýjungum í framleiðslu 

  • Gildingar á framleiðslubúnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc gráða í verkfræði, tæknifræði, lífvísindum eða skyldum greinum 

  • 0-2 ára reynsla í tæknilegu-, og eða gæðastarfi

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu 

  • Metnaður og jákvæðni 

Advertisement published24. March 2025
Application deadline4. April 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Sundstræti 38, 400 Ísafjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.Industrial technicianPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags
Would you like some cookies? Alfred uses cookies to analyze traffic on the web and improve your experience. See more.