Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri

Innri þróunarmarkmiðin

Innri þróunarmarkmiðin (Inner Development Goals – IDG) er 6 vikna námskeið fyrir einstaklinga, stjórnendur og starfsfólk sem vilja efla innri styrk, vellíðan og hæfni til að takast á við áskoranir samtímans. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig eiginleikar á borð við sjálfsþekkingu, samkennd, hugrekki, sköpunargáfu og innri áttavita geta stuðlað að jákvæðum breytingum í einkalífi, starfi og samfélagi.

Námskeiðið byggir á alþjóðlega IDG-rammanum sem þróaður var til að styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG) með áherslu á hvaða innri eiginleika þarf að leggja rækt við til að styðja við ytri breytingar. Kennslan samanstendur af fræðslu, umræðum, verkefnum og æfingum sem styðja þátttakendur í að lifa og starfa með meiri meðvitund, jafnvægi og tilgangi.

Hefst
15. sept. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
6 skipti
Verð
96.500 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar