Skipulagsstofnun
Skipulagsstofnun sinnir stefnumótun, stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag og framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu auðlinda og vandaða byggð að leiðarljósi. Stofnunin vinnur í víðtæku samráði við sveitarfélög, önnur stjórnvöld og hagsmunaaðila.
Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipulagslaga, laga um skipulag haf- og strandsvæða, laga um mat á umhverfisáhrifum og laga um umhverfismat áætlana og heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið.
Hjá stofnuninni ríkir góður starfsandi og í boði er góð starfsaðstaða. Nánari upplýsingar má finna á www.skipulag.is
Verkefnisstjóri á sviði miðlunar
Viltu slást í hópinn?
Skipulagsstofnun auglýsir eftir verkefnisstjóra til starfa á svið miðlunar, útgáfu og viðburða hjá stofnuninni.
Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem krefjast agaðra vinnubragða, drifkrafts, samskiptahæfileika og þekkingar á skipulagsmálum á Íslandi.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og leitt verkefnisteymi til árangurs í fjölbreyttum gerðum verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast þróun á sviði miðlunar og umsjón með vefsíðum Skipulagsstofnunar og samfélagsmiðlum ásamt fréttabréfi.
- Undirbúningur og framkvæmd viðburða í samstarfi við viðkomandi fagsvið.
- Undirbúningur og útgáfu leiðbeininga, kynningarefnis og annars efnis á sviði skipulagsmála
- Miðlun efnis og samskipti við hagsmunaaðila og fjölmiðla í samstarfi við viðkomandi stjórnendur
- Ýmis verkefni við stefnumótun, leiðbeiningar og miðlun um skipulagsgerð og umhverfismat.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði skipulagsmála.
- Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu á sviði skipulagsmála.
- Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskukunnátta er nauðsynleg.
Auglýsing birt11. desember 2024
Umsóknarfrestur2. janúar 2025
Tungumálahæfni
Enska
Mjög góðNauðsyn
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 7, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (10)
Verkefnisstjóri á sviði stefnumótunar
Skipulagsstofnun
Ert þú öflugur leiðtogi?
Seðlabanki Íslands
Drekadalur - Kennarar
Reykjanesbær
Drekadalur - Deildarstjórar
Reykjanesbær
Leiðandi sérfræðingur á sviði stafræns öryggis
Fjarskiptastofa
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fjarðabyggð
Þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarmála
Fjarðabyggð
Deildarstjóri í launadeild
Fjarðabyggð
Verkefnastjóri farsældar barna
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Sérfræðingur í greiningu
Hagstofa Íslands