

Verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks
Skrifstofa málefna fatlaðs fólks á velferðarsviði Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnastjóra laust til umsóknar.
Skrifstofan sinnir allri framkvæmd þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík, stjórnsýsluverkefnum og leiðandi hlutverki við þróun og nýsköpun í málaflokknum.
Á skrifstofunni er lögð áhersla á teymisvinnu og viljum við ráða til starfa einstakling sem þrífst á krefjandi verkefnum, skynjar taktinn í samfélaginu og elskar breytingar. Til að stuðla að farsælum árangri er mikið lagt upp úr skilvirkni og nýtingu tölfræði og greininga við mótun tillagna.
Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.
- Undirbúningur stefnumótunar, vinnsla tillagna og greinargerða fyrir velferðarráð Reykjavíkurborgar
- Stjórnsýsluleg verkefni í málaflokki fatlaðs fólks
- Leiðandi í verkefnum sem tengjast þróun og nýsköpun
- Umsjón með tölfræðiupplýsingum er varða málaflokk fatlaðs fólks
- Umsjón og utanumhald með samningum er varða þjónustu við fatlað fólk
- Samráð við fatlað fólk og hagsmunaaðila
- Samstarf við skipulagseiningar innan sem utan borgar
- Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk og stjórnendur í málaflokki fatlaðs fólks
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og framhaldsmenntun æskileg
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Afburðahæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfni og góð greiningarhæfni
- Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Fyrsta flokks vinnustað
- Krefjandi og skemmtileg verkefni
- Góða liðsheild og góð samskipti
- 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
- Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
- Samgöngusamning
- Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
Íslenska



























