Akureyri
Akureyri
Akureyri

Sumarstörf Velferðarsvið: Háskólamenntaðir starfsmenn

Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða einstaklinga með háskólamenntun (B.S., B.A., B.Ed.) á félags-, heilbrigðis- eða uppeldissviði sem nýtist í starfi til sumarafleysinga sumarið 2026. Í boði eru störf í vaktavinnu, þar sem unnið er á dag-, kvöld-, og helgarvöktum.

Langar þig að kynnast nýju fólki og sjálfum þér betur í leiðinni? Mæta í vinnuna þar sem enginn dagur er eins? Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf þar sem mannleg samskipti og umhyggja eru í forgrunni.

Góð liðsheild á starfsstöðvunum okkar spilar stóran þátt í því að láta fólki líða vel og veita góða þjónustu. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og valdeflingu.

Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk. Lögð er áhersla á að efla og styðja notendur þjónustunnar til sjálfsbjargar og sjálfstæðis. Starfsfólk okkar sinnir ólíkum einstaklingum í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir faglega ráðgjöf og stuðning við íbúa og starfsfólk.
  • Tekur þátt í faglegri uppbyggingu og skipulagningu á einstaklingsmiðaðri þjónustu í samstarfi við forstöðumann.
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila og aðstandendur.
  • Starfið felur í sér vönduð og öguð vinnubrögð.
  • Tekur þátt í gerð þjónustuáætlana og dagsskipulags innan hverrar einingar fyrir sig.
  • Vinnur náið með forstöðumanni og deildarstjórum og er leiðbeinandi við starfsfólk um fagleg vinnubrögð á starfsvettvangi.
  • Tekur þátt í mótun starfseminnar.
  • Aðstoðar við athafnir daglegs lífs.
  • Tekur þátt í öllum almennum heimilisstörfum.
  • Tekur þátt í sí- og endurmenntun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (B.S., B.A., B.Ed ) á félags-, heilbrigðis- eða uppeldissviði sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf.
  • Hæfileiki og áhugi á að starfa með fólki og hefur sýnt lipurð og þekkingu í fyrri störfum.
  • Þekking á málefnum notendahópsins, þ.e. fötluðum og þeirri þjónustu sem þeim stendur til boða.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði, samvinnuhæfni og vera tilbúinn að vinna með hópi fólks.
  • Gott líkamlegt atgervi.
  • Talar, skrifar og skilur vel íslensku.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt11. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar