
Ístak hf
Við erum framsækið verktakafyrirtæki þar sem framkvæmdagleði er í fyrirrúmi. Við veitum ávallt bestu þjónustu sem völ er á og leggjum metnað í að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar.
Hjá Ístaki starfa hátt á fimmta hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis. Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag.
Kynntu þér störf í boði eða leggðu inn almenna umsókn.

Verkefnastjóri
Ertu skipulögð/ur, lausnamiðuð/aður og vilt taka þátt í að byggja framtíðina með öflugu teymi?
Við leitum að öflugum einstaklingi í hlutverk verkefnastjóra, sem ber ábyrgð á framleiðslustjórnun í jarðvinnu- og mannvirkjagerð. Verkefnastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegri framkvæmd verksins og er nátengdur allri stjórnun og framvindu. Í starfinu felst að leiða fjölbreyttan og hæfileikaríkan hóp, halda utan um áætlanir, tryggja öryggi og gæði og vinna þétt með starfsmönnum og stjórnanda verksins að því að verkefnið gangi hnökralaust fyrir sig.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á framkvæmdum og lausnamiðaðri hugsun á lifandi og krefjandi byggingarsvæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Magntaka og rýni verkgagna með tilliti til tæknilegra úrlausna og, eftir atvikum, þátttaka í tilboðsgerð
- Gerð verkáætlana og skipulagning framkvæmda í nánu samstarfi við staðarstjóra og teymi
- Þátttaka í verkfundum, upplýsingagjöf til verkkaupa og samskipti við eftirlitsaðila
- Gerð vinnuteikninga og þróun hagkvæmra og framkvæmanlegra lausna fyrir einstaka verkþætti
- Áætlanagerð og framkvæmd innkaupa í samráði við innkaupadeild
- Uppfærsla og eftirfylgni með öryggis-, heilsu- og umhverfisáætlunum (ÖHU)
- Skráning, útreikningar og utanumhald á aukaverkum og breytingum frá samningi
- Greining framvindu og gerð reglulegra skýrslna um stöðu verks
- Virk þátttaka í umbótastarfi og innleiðingu nýrra lausna og verklags
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í byggingarverkfræði eða skyldum tæknigreinum
- Haldbær reynsla á sviði mannvirkjagerðar
- Gott skipulag, sjálfstæð og markviss vinnubrögð, ásamt nákvæmni í tæknilegum útfærslum
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og geta til að leiða faglegt samstarf
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af teymisvinnu
- Góð tölvukunnátta og reynsla af helsta hugbúnaði
- Mjög góð íslenskukunnátta, í rituðu og töluðu máli
- Góð enskukunnátta, í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt12. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bugðufljót 19, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (8)

Machine operators and truck drivers on Reykjanes peninsula
Ístak hf

Vélamenn og bílstjórar á Reykjanesi
Ístak hf

Verkstjóri
Ístak hf

Construction worker
Ístak hf

Byggingaverkamaður
Ístak hf

Earthwork laborer for the Reykjanes peninsula
Ístak hf

Jarðvinnuverkamenn á Reykjanesi/ Do robót ziemnych
Ístak hf

Vélamenn og bílstjórar
Ístak hf
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í áætlanagerð fjárfestingaverkefna
Landsvirkjun

Verkefnastjóri - Reyðarfjörður
VHE

Við leitum að liðsauka í sjálfbærni
Arion banki

Skipulagsfulltrúi
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita

Stjórnandi verkefnaskrár og verkefnastýringar vatnsmiðla
Veitur

Leiðtogi framkvæmdaflokks Þjónustu
Veitur

Ráðgjafi kerfisbundins frágangs
NORCOM - Nordic Commissioning ehf.

Verkstjóri/verkefnastjóri
TILDRA Byggingafélag ehf.

Sérfræðingur í viðhaldsstýringu
Landsnet hf.

Verkefnastjóri samgönguinnviða
Umhverfis- og skipulagssvið

Tækni- og eða iðnmenntaður verkefnastjóri
First Water

Sérfræðingur í greiningum
Stoðir hf.