Verk- eða Tæknifræðingur óskast á línudeild
Norconsult leitar að metnaðarfullum Byggingar- og vélaverkfræðingum eða tæknifræðingum í hönnun og ráðgjöf á Línudeild. Línudeild Norconsult vinnur náið með öðrum línudeildum Norconsult í Noregi, Svíþjóð og Póllandi. Verkefni deildarinnar felast meðal annars í hönnun á háspennulínum, gerð útboðsgagna, ráðgjöf og eftirlit á verktíma. Verkefnin eru fjölbreytt bæði innan- og utanlands. Spennandi tækifæri fyrir metnaðarfulla einstaklinga.
Norconsult á Íslandi er partur af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki og jafnframt stærstu verkfræðistofu Noregs með yfir 6500 starfsmenn þar sem verkefnin spanna frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á Íslandi starfa um 80 manns við verkfræði og arkitektúr í gegnum dótturfélög Norconsult við innlend og erlend verkefni víðs vegar um heiminn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf í tengslum við hönnun á raforkukerfum
- Gerð útboðsgagna og verklýsinga
- Hönnun háspennulínumastra og undirstaða
- Ákvörðun línuleiða
- Landlíkanagerð
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í Byggingar- eða Vélaverkfræði / Tæknifræði
- Reynsla af hönnun stálvirkja er kostur
- Þekking á FEM forritum er kostur
- Þekking á AutoCAD er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í samskiptum og samvinnu í teymum
- Þekking á norðurlandamáli er kostur
Fríðindi í starfi
Hreyfistyrkur, samgöngustyrkur, símastyrkur ásamt símaáskrift og heimanettengingu svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið er að megninu í eigu starfsmanna sinna og býðst öllum starfsmönnum árleg fríðindi til hlutabréfakaupa í fyrirtækinu á sérkjörum. Sveigjanlegur vinnutími í vinalegu umhverfi og í hjarta Kópavogs.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn www.norconsult.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Hjalti Helgason, Hjalti.Helgason@norconsult.com
Þorgeir Hólm Ólafsson, Thorgeir.Holm.Olafsson@norconsult.com