Veitur
Veitur
Veitur

Hönnuður í rafveitu

Viltu taka þátt í móta grunnstoðir samfélagsins til framtíðar?
Á næstu árum munu orkuskipti gjörbreyta íslensku samfélagi og knýja fram nýja tíma í ört stækkandi samfélagi. Rafveita Veitna stendur í forystu þessara umbreytinga, þar sem áskorunin er að tryggja áreiðanlegt og öflugt dreifikerfi fyrir orkunotkun sem er áætlað að tvöfaldist á næstu 20-30 árum.
Við leitum að skipulögðum og lausnamiðuðum hönnuði sem býr yfir greiningarhæfni, frumkvæði og umhyggju. Ef þú hefur gaman af að vinna náið með teymi og viðskiptavinum, og takast á við spennandi áskoranir á sviði rafdreifikerfa, þá viljum við heyra í þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Frumhönnun og kerfisgreiningar
  • Þátttaka í hönnun, úttektum og lausn tæknilegra áskorana
  • Þátttaka í gerð tæknilýsinga í útboðsgögnum
  • Tæknilegur stuðningur við samstarfsfólk
  • Samstarf við aðra veitur Veitna
  • Þátttaka í gerð hönnunarleiðbeininga, sérteikninga og leiðbeinandi efnislista
  • Þátttaka í verkefnum á sviði þróunar og nýsköpunar innan orku- og veitugeirans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldgóð þekking á rafveitukerfum
  • Reynsla af hönnun rafveitukerfa
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Samskipta- og skipulagshæfni
  • Háskólamenntun á sviði rafmagns eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Auglýsing birt14. janúar 2025
Umsóknarfrestur28. janúar 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar