Vefforritun í TypeScript
Moodup leitar að starfsmanni í vefforritun. Í starfinu felst tæknileg aðstoð við viðskiptavini auk vöruþróunar, viðbóta og villulagfæringa hugbúnaðarþjónustunnar. Stakkur er React/Node/Postgres í TypeScript/SQL. Um er að ræða 100% starfshlutfall og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst.
Moodup er ungt og ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki sem mælir starfsánægju hjá 40.000 starfsmönnum á rúmlega 100 vinnustöðum. Moodup sendir starfsfólki reglulegar kannanir þar sem það tjáir sig í skjóli nafnleyndar. Stjórnendur geta síðan skoðað, greint, rætt og unnið með niðurstöður mælinga í mælaborði til að bæta starfsumhverfið. Sjá nánar á Moodup.is.
Þrír starfsmenn eru hjá Moodup í dag: framkvæmdastjóri, tæknistjóri og sölu- og markaðsfulltrúi. Við erum með skrifstofu í Sjávarklasanum úti á Granda, sem er samvinnurými (e. coworking space) með 70 fyrirtækjum. Í boði er að vinna hluta starfsins í fjarvinnu.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Tómas Tómasson, framkvæmdastjóri, á netfanginu david@moodup.is
· Samskipti og tæknileg aðstoð fyrir viðskiptavini (t.d. villulagfæringar og endurbætur á núverandi virkni)
· Þróun nýrrar virkni undir leiðsögn tæknistjóra (bæði fram- og bakendi)
· Önnur tilfallandi verkefn
· Háskólanám sem nýtist í starfi (t.d. tölvunar-, kerfis-, verk-, eðlis- eða stærðfræði)
· Þekking á TypeScript, React og SQL
· Færni í mannlegum samskiptum
· Gott vald á rituðu máli bæði á íslensku og ensku
· Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð