Sérfræðingur í gagnaþróun
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulundaðan einstakling í starf sérfræðings í gagnaþróun í deild þróunar og gagnahögunar á sviði upplýsingatækni.
Sviðið sér um þróun, rekstur og viðhald á stafrænum upplýsinga- og viðskiptalausnum bankans. Deildin annast fjölbreytt verkefni en sérfræðingar í gagnaþróun bera ábyrgð á tæknilegri útfærslu og rekstri á gagnaskilum bankans. Einnig sjá þau um þróun á tölfræðivöruhúsi gagna, stuðning við gagnaskil skilaaðila, ásamt skilum á gögnum til evrópskra eftirlitsstofnana.
· Uppbygging, samþætting og viðhald á gagnaumhverfi bankans
· Þróun og viðhald á gagnagrunnum, ETL ferlum, gagnaskilum og gagnaprófunum
· Þróun gagnainnviða og vöruhúss fyrir tölfræðivinnslu
· Verkefni tengd þarfagreiningu og hönnun gagnamódela
· Meistarapróf á háskólastigi í tölvunar-, verkfræði eða sambærilegu sem nýtist í starfi
· Þekking og reynsla á SQL og gagnagrunnsforritun
· Þekking og reynsla á ETL ferlum
· Þekking á SDMX, XML og/eða XBRL er kostur
· Þekking á C#, Python og/eða R er kostur
· Þekking á skýjalausnum (t.d. Azure data solutions) er kostur
· Lipurð í mannlegum samskiptum og góð hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum
· Frumkvæði, skapandi hugsun, jákvæðni, skipulag og metnaður í starfi
· Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti