Tæknimaður á stjórnborði/NOC
Við hjá Sýn erum að leita að tæknimanni á stjórnborðið okkar sem er tæknilegasta skrifstofa fyrirtækisins. Stjórnborðið gegnir mikilvægu hlutverki í að vakta tækni-innviði Sýnar ásamt kerfum frá öðrum aðilum.
Helstu hlutverk tæknimanns eru að vakta eftirlitskerfi, fylgjast með fjarskiptum í innsta hring og bregðast við uppákomum sem fela í sér að kalla út viðbragðsaðila (bakvaktir). Starfið er því mjög fjölbreytt og snertir á mörgum tæknilausnum. Á stjórnborðinu er unnið eftir vaktafyrirkomulagi sem rúllar á 5 vikum og inniheldur 7 dagvaktir, 4 kvöldvaktir, 7 næturvaktir og 17 vakta frídaga.
Helstu verkefni:
- Vakta eftirlitskerfi, bregðast við atvikum og kalla út viðbragðsaðila bakvaktir).
- Skrá atvik og senda tilkynningar til viðskiptavina.
- Samskipti við tæknimenn og aðra hagsmunaaðila.
- Leggja til umbótaverkefni í kjölfar atvika.
Hæfniskröfur:
- Nákvæmni, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Tækniþekking
- Geta fylgja skilgreindum ferlum
- Gott talnalæsi
- Góð samskiptahæfni og góð þjónustulund
- Metnaður til að gera sífellt betur við að þjónusta viðskiptavini stjórnborðs.
- Þekking á hugbúnaðar, net og fjarskiptalausnum er kostur
Nýir starfsmenn fá ítarlega grunnþjálfun áður en þeir hefja störf á stjórnborði.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 18.nóvember nk. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsdeild á mannaudur@syn.is.
Hver erum við?
Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport, Já.is og dótturfélagið Endor. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.