Sumarstarf á skrifstofu
Álfasaga ehf. leitar að einstaklingi í móttöku og almenn skrifstofustörf. Um er að ræða sumarafleysingu í dagvinnu á tímabilinu frá miðjum Maí fram í ágúst með möguleika á framtíðarstarfi. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður í nýjum húsakynnum fyritækisins. Leitast er eftir öflugum einstaklingi með hæfni til að vinna sjálfstætt, er mjög skipulagður, jákvæður, hefur ríka þjónustulund og er lausnamiðaður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einföld sala á vörum og þjónustu.
- Móttaka og skráning reikninga
- Áætlunargerð
- Símsvörun og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræði, viðkenndur bókari eða reynsla sem nýtist í starfi mikill kostur.
- Reynsla og góður skilningur á bókhaldi
- Þekking á Microsoft Dynamics NAV er kostur
- Góð færni á Excel er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af fjárhagsáætlanagerð er kostur
Hjá Álfasögu starfar öflugur og samhentur hópur sem ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Álfasaga er móðurfélag nokkurra fyrirtækja sem eiga það öll sameiginlegt að framleiða gæða matvöru sem seldar eru á neytendamarkaði, til stóreldhúsa og til flugfélaga. Dótturfyritæki fyrirtækisins eru Dagný & Co., Móðir Náttúra, Einn, tveir & elda, Kræsingar og NúllVes, auk þess að sjá um innflutning á fjölda vörumerkja.