

Starfsmannastuðningur og ráðgjöf
Skrifstofa mannauðsmála Landspítala óskar eftir að ráða sálfræðing til að sinna stuðningi og ráðgjöf fyrir starfsmenn spítalans auk aðkomu að fræðslu og eftirfylgni vegna samskiptasáttmála Landspítala. Starfsmaðurinn verður þátttakandi í stuðnings- og ráðgjafarteymi. Starfshlutfall er 50% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Við viljum ráða sálfræðing sem hefur færni í stuðningi og ráðgjöf, er lausnamiðaður, hvetjandi og brennur fyrir eflingu einstaklinga, teymisvinnu og jákvæðri úrlausn mála. Reynsla af úrvinnslu erfiðra samskiptamála og vinna með vanlíðan af ýmsu tagi er mikill kostur sem og reynsla af stjórnun, markþjálfun, handleiðslu og að leiða vinnustofur og hópastarf er kostur.
Á skrifstofu mannauðsmála starfa um 50 starfsmenn í þremur deildum; kjaradeild, launadeild og mönnunar- og starfsumhverfisdeild, en stuðnings- og ráðgjafarteymið heyrir undir skrifstofu mannauðsmála.






























