Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Starfsmaður óskast í iðju- og dagþjálfun.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem meðal annars er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða starfsmann í iðju- og dagþjálfun. Um 80% starfshlutfall í dagvinnu er að ræða. Notendur iðju- og dagþjálfunar eru bæði í almennum dagþjálfunarrýmum og dagþjálfunarrýmum fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma. Markmið iðju- og dagþjálfunar er að rjúfa einangrun notenda sem og að efla þá í að taka þátt í daglegum athöfnum, þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður uppá. Áhersla er lögð á að gera einstaklingum kleift að búa heima og viðhalda sjálfsbjargargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfsemi.

Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu og einlægan áhuga á starfi í þjónustu við aldraða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um virkni og einstaklingsíhlutun inn á heimilum hjúkrunarheimilisins
  • Styðja, leiðbeina og hvetja notendur.
  • Taka þátt í félagsstarfi, sbr. upplestri, handverki, leikfimi og hópastarfi.
  • Aðstoða við athafnir daglegs lífs s.s. bað, klæðnað og aðrar athafnir.
  • Samskipti við aðstandendur notenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð samskiptahæfni.
  • Þolinmæði og sveigjanleiki.
  • Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæði í starfi.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
Auglýsing birt8. nóvember 2024
Umsóknarfrestur25. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar