Starf í búsetukjarna
Við í búsetukjarnaum Klapparhlíð í Mosfellsbæ leitum eftir öflugum starfsmönnum til liðs við okkur. Við vinnum eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn sem og einstaklings og þjónustuáætlunum. Við leggjum okkur fram við að skapa góða liðsheild. Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og samkvæmt stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Við erum að leita eftir starfsmönnum í þrjár stöður 15%, 40% og 90% starfshlutfall og gengið er út frá því að starfsmenn geti tekið kvöld, helgar og/eða næturvaktir.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka víðsýni þeirra og félagslega virkni
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Framtakssemi og samviskusemi
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hreint sakavottorð
- Aldursskilyði 20 ár
- Góð íslenskukunnátta skilyrði