Deildarstjóri í sértækt búsetu úrræði
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra í sértækt búsetu úrræði. Um er að ræða starf sem unnið er í dagvinnu. Við óskum eftir einstaklingi sem hefur framúrskarandi samskiptahæfileika, með drífandi áhuga á málefnum fatlaðs fólks og vill hafa gaman í vinnunni og er öðrum starfsmönnum fyrirmynd. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á réttindi fatlaðs fólks.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og fræðslu
- Veitir starfsmönnum fræðslu og handleiðslu
- Framfylgir hlutverki og markmiðum starfsstöðvar
- Hefur yfirumsjón yfir faglegu starfi og tekur þátt í að þróa og yfirfara verkferla
- Veitir fötluðu fólki stuðning og ráðgjöf við athafnir daglegs lífs
- Tekur virkan þátt í þróunarvinnu
- Umsjón með bókhaldi
- Er staðgengill forstöðumanns í hans fjarveru
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða BA/BS gráða á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki
- Stjórnunarreynsla æskileg
- Reynsla og þekking af teymisvinnu æskileg
- Mikilvægir eiginleikar eru sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Faglegur metnaður í starfi og áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Starfið krefst góðs líkamlegs atgervis
- Íslenskukunnátta skilyrði
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Berglind Brynjarsdóttir forstöðukona í síma: 544-2360 netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 25.nóvember 2024.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.