Héðinn
Héðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis.
Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim.
Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni.
Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki.
Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði.
Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru í Íshellu,þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi.
Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða.
Að jafnaði starfa um 100 hjá Héðni. Meðal starfsgreina má nefna stálsmiði, rennismiði, tæknifræðinga, vélstjóra, vélvirkja, verkfræðinga, stjórnendur, skrifstofufólk og matreiðslumenn.
Starfsmaður í nýsköpunar- og þróunardeild
Véltæknifyrirtækið Héðinn hf. leitar að öflugum einstaklingi til starfa á nýsköpunar- og þróunardeild sinni.
Starfsmaðurinn mun starfa í litlu og nánu teymi við vöru- og hugbúnaðarþróun.
Leitað er að lausnarmiðuðum einstaklingi með reynslu af forritun og er reynsla af DevOps mikill kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gagnaöflun um tækjabúnað í skipum
- Hugbúnaðarþróun
- Þrívíddarskönnun skipa
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. tölvunarfræði eða verkfræði
- Reynsla af forritun (t.d. C#, html, css, Javascript).
- DevOps reynsla er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
- Hugmyndaauðgi og metnaður til að ná árangri í starfi
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti með morgunmat og heitum mat í hádeginu
- Líkamsræktaraðstaða
- Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt17. janúar 2025
Umsóknarfrestur27. janúar 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
C#CSSHönnun gagnagrunnaHTMLJavaScriptSQL
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
DevOps Engineer
Rapyd Europe hf.
Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn
Verkefnastjóri í fasteignaumsjón
Vegagerðin
Verk- eða Tæknifræðingur óskast á Framkvæmdasviði
Norconsult ehf.
Verk- eða Tæknifræðingur óskast á línudeild
Norconsult ehf.
Deildarstjóri Lyfja- og lækningatækjadeildar
Alvotech hf
Data analyst and reporting specialist
Planet Youth
Verkefnastjóri á þróunarsviði
Reitir fasteignafélag
Sérfræðingur í gagnaþróun
Seðlabanki Íslands
Viltu auka vellíðan og öryggi starfsfólks á vinnumarkaði?
Vinnueftirlitið
Lagna- og loftræsihönnuður
Pascal ehf.
Upplýsingatæknistjóri
Míla hf