Byko
Byko
Byko

Starfsmaður á afgreiðslukassa og þjónustuborði - BYKO Grandi

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í starf á afgreiðslukössum og þjónustuborði í verslun okkar BYKO Granda.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita af þér.
Æskilegt er að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Við leitum að einstaklingi með:
  • Reynsla af þjónustustörfum, kostur
  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Íslenskukunnáttu
Helstu verkefni og ábyrgð:
  • Afgreiðsla og þjónusta á þjónustuborði, afgreiðslukassa og sjálfsafgreiðslu
  • Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Karl Már Lárusson, verslunarstjóri (karlml@byko.is)
Auglýsing birt30. desember 2024
Umsóknarfrestur12. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fiskislóð 15-21, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar