A4
A4
A4

A4 Keflavík - Sölufulltrúi í verslun

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í nýja verslun okkar í Keflavík. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi í hlutastarf þar sem unnið er aðra hverja viku, þriðjudag, miðvikudag og laugardag. Möguleiki er á fleiri vöktum sé þess óskað.
Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

· Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar

· Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa

· Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

· Reynsla af sölu- og verslunarstörfum

· Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum

· Sjálfstæði og frumkvæði í starfi

· Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara

· Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi

· Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni

· Íslenskukunnátta

· 18 ára aldurstakmark

Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2024

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Tinna Kamilla í síma 580-0060 eða gegnum netfangið tinna@a4.is

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.

Auglýsing birt3. janúar 2025
Umsóknarfrestur15. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hafnargata 27, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar