Talningafulltrúi - BYKO Breidd
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í utanumhald með birgðum og framkvæmd sítalninga í verslun BYKO Breidd.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Um fullt starf er að ræða og er vinnutími alla jafna átta klst á tímabilinu milli 8:00-16:15 (sveigjanlegur) getur verið frá 09:00-17:15.
Við leitum að starfsmanni með:
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Getu til að vinna sjálfstætt
- Ríka þjónustulund
- Íslenskukunnáttu í ræðu og riti
- Góða tölvukunnáttu og hæfni til að tileinka sér notkun á nýjum kerfum
- Reynslu af utanumhaldi með birgðum og talningum, kostur
- Þekkingu á vörum BYKO, kostur
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Undirbúningur og framkvæmd sítalninga
- Eftirvinnsla talninga s.s. uppfæra birgðastöðu
- Umbætur á merkingum og framsetningu á vörum m.t.t. talninga
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásta Kristín Svansdóttir, (astaks@byko.is) skrifstofustjóri.