Cargow Thorship
Cargow ThorShip er alhliða þjónustufyrirtæki í fraktflutningum með vikulegar siglingar á milli Íslands og meginlands Evrópu.
Starfsmenn ThorShip hafa í krafti reynslu sinnar þróað traust samstarf við öfluga þjónustuaðila í fraktflutningum á heimsvísu. Með vikulegum áætlunarsiglingum, lágmarks yfirbyggingu og þjónusta þeirra bestu við okkur er þar sem viðskiptavinir okkar finna muninn: Við erum einfaldlega snjallari!
Auk flutningsmiðlunar önnumst við umboðsþjónustu, skipamiðlun og hvers konar ráðgjöf á sviði alþjóðaflutninga. Þá tökum við að okkur alla skjalagerð og umsýslu fyrir viðskiptavini okkar, stóra sem smáa.
Starf á Þjónustusviði - Farmskrárfulltrúi
Cargow ThorShip leitar eftir öflugum starfskrafti í þjónustudeild. Helstu verkefni þjónustudeildar snúa að farmskrár- og tollskjalagerð ásamt almennri þjónustu við viðskiptavini.
Leitað er að samviskusömum og drífandi einstaklingi sem hefur metnað fyrir að ná árangri í starfi og vinna með hópi öflugs samstarfsfólks. Viðkomandi þarf að vera búa bæði yfir þeim aga og frumkvæði sem þarf að til að geta unnið hvort sem er sjálfstætt eða í teymi með öðrum.
Við bjóðum uppá góð tækifæri til að vaxa í starfi hjá traustu fyrirtæki með traustan fjárhag og góðan rekstur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Farmskrárgerð
- Tekjuskráning
- Tollskjalagerð
- Samskipti við viðskiptavini
- Samskipti við innlenda sem erlenda samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Reynsla af flutningum (sjófrakt og/eða flugfrak)
- Viðkomandi þarf að vera talnaglöggur og nákvæmur í vinnubrögðum
- Hugsa í lausnum
- Stúdentspróf
- Stundvísi
- Rík þjónustulund
- Hrein sakaskrá
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun
- Tækifæri til að vaxa í starfi
- Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt20. desember 2024
Umsóknarfrestur6. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Enska
MeðalhæfniNauðsyn
Staðsetning
Selhella 11, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Sérfræðingur í upplýsingatækni
Cargow Thorship
Starf á Fjármálasviði - Bókari
Cargow Thorship
Lögfræðingur á málefnasviði
Viðskiptaráð
Reyndur bókari
Flügger Litir
Gagnasöfnun - spyrlar
Hagstofa Íslands
Skjalavarsla
Útlendingastofnun
Gjaldkeri
Luxury Adventures
Ferðaþjónusta - Skrifstofustarf
Snæland Grímsson ehf.
Bókari 50% starf
Borgarleikhúsið
Símsvörun - þjónustuver
Teitur
Þjónustufulltrúi í fullt starf
Verifone á Íslandi ehf.
Rekstrarstjóri fimleikadeildar Fjölnis
Ungmennafélagið Fjölnir