Skjalavarsla
Útlendingastofnun leitar að kraftmiklum starfsmanni í skjalavörslu hjá stofnuninni. Verksvið er þvert á svið stofnunarinnar, t.a.m. móttaka, skráning, varðveisla/röðun gagna, skönnun og miðlun skjala, svörun fyrirspurna, upplýsingaleit og önnur tilfallandi verkefni. Starfið heyrir undir sviðsstjóra skrifstofu forstjóra.
Útlendingastofnun er spennandi vinnustaður á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá stofnuninni starfar um 120 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig vegabréfsáritanir, umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og sveigjanlegan vinnutíma. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er vinnuvikan 36 stundir.
- Móttaka, skráning og skönnun/röðun gagna
- Miðlun skjala
- Svörun fyrirspurna
- Upplýsingaleit
- Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
- Þátttaka í teymisvinnu
- Stúdentspróf og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi í skjalavörslu, móttöku og frágangi skjala er kostur
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking á skjalavistunarkerfinu GoPro er kostur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri