Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starf á skammtímaheimili fatlaðra

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri til starfa á skammtímaheimili fyrir ungt fólk með fötlun í Kópavogi. Á heimilinu sækja tíu einstaklingar þjónustu, fimm í einu og þar er lögð áhersla á að þjónustunotendur búi sig undir flutninga að heiman. Starfið felst í því að veita aðstoð og leiðbeiningar við allt er lýtur að daglegu lífi þjónustunotenda bæði inni á heimilinu og utan þess.

Um er að ræða vaktavinnu í um 70% starfi eða eftir samkomulagi, þar sem unnið er að jafnaði eina helgi í mánuði á morgun- millivöktum og kvöldvöktum ásamt kvöldvöktum og stökum sinnum næturvöktum á virkum dögum.

Gott er ef starfsmaður geti byrjað sem fyrst.

Starfið er tímabundið til eins árs en með möguleika á áframhaldandi starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við þjónustunotendur.
  • Vera þjónustunotendum góð fyrirmynd.
  • Stuðla að auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
  • Almennt heimilishald.
  • Samvinna við starfsmenn, aðstandendur og aðra þjónustuaðila.
  • Fjölbreytt verkefni innan og utan heimilis.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Félagsliði, nám á framhaldsskólastigi eða töluverð reynsla af vinnu með fötluðu fólki.
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
  • Hæfni í samskiptum og samstarfi.
  • Frumkvæði, framtakssemi og sjálfstæði.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Geta til að starfa undir álagi.
  • Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
Auglýsing birt15. október 2024
Umsóknarfrestur29. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 54, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar