Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Fjölbreytt og spennandi starf stuðningsfulltrúa í Bríetartún

Norðurmiðstöð óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan stuðningsfulltrúa til starfa á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða. Á staðnum ríkir góður starfsandi þar sem gleðin er ávallt í fyrirrúmi.

Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaðan stuðning, þar sem unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og batamiðaða nálgun. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt með áherslu á valdeflingu og aukin lífsgæði.

Um er að ræða 90% vaktavinnu, og er unnið á blönduðum dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfið er laust frá nóvember 2024 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hvetur og styður einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs og samfélagslegrar þátttöku, s.s. heimilisþrif, eldamennsku, atvinnu, stunda afþreyingu, sækja íþrótta- og menningarviðburði og við að rækta félagstengsl.
  • Sinnir umönnun og er vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga og aðstoðar þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
  • Fylgir eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum í samráði við deildarstjóra og forstöðumann.
  • Unnið eftir stefnu Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Íslenskukunnátta B1-2 (samkvæmt samevrópskum matsramma um tungumálaviðmið).
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með fötlun æskileg.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuaðstæður.
  • Sveigjanleiki, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára.
  • Ökuréttindi æskileg en ekki skilyrði.
  • Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Sundkort að sundlaugum Reykjavíkurborgar
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt11. október 2024
Umsóknarfrestur27. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar