Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Sundlaug Kópavogs - Tímabundin ráðning - Fullt starf

Laugarvörður - Sundlaug Kópavogs - Tímabundin ráðning

Laust er til umsóknar starf í móttöku sundlaugarinnar, við laugarvörslu, þrif og baðvörslu í búningsklefum karla. Starfið er til áramóta að minnsta kosti. Unnið er á vöktum. Á hverjum fjórum vikum eru sjö kvöldvaktir, klukkan 14:05 - 22:30 og átta morgunvaktir, klukkan 06:15 – 14:15. Þá er ein helgarvakt (laugardagur og sunnudagur) klukkan 07:45 – 18:30, á hverjum fjórum vikum .

Sundlaug Kópavogs er staðsett í vesturbæ Kópavogs, stutt frá Hamraborginni og er einn stærsti sundstaður landsins. Þar eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum potti, gufubaði og rennibrautum. Hjá lauginni starfa á fjórða tug manna við þjónustustörf og öryggisgæslu.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Umsækjendur þurfa að geta hafið störf ekki síðar en 4. nóvember.
  • Fullt starf.
  • Tímabundin ráðning - Til áramóta að minnsta kosti.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Allgóð sundkunnátta áskilin.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og vera reglusamir, samviskusamir, vinnusamir, þjónustulundaðir og góðir í samskiptum.
  • Umsækjendur þurfa að geta unnið í búningsklefum karla.
  • Starfið hentar ekki síður þeim sem eru komnir á og yfir miðjan aldur en þeim sem yngri eru.
  • Starfið krefst nokkurrar íslenskukunnáttu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipta má störfum starfsmanna sundlaugarinnar í þrjú svið, ÖRYGGI, ÞRIF og ÞJÓNUSTU.
Á vinnustaðnum eru þrjú megin störf sem starfsfólk þarf að leysa af hendi.
Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.
Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum.
Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.

Frekari upplýsingar

Mikilvægt er að upplýsingar um meðmælendur fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til 21. október.

Laun eru samkvæmt samningi Starfsmannafélags Kópavogs og Launanefndar sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Jakob Þorsteinsson í netfanginu jakob@kopavogur.is.

Auglýsing birt10. október 2024
UmsóknarfresturEnginn
Laun (á mánuði)750.000 - 800.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaGrunnfærni
Staðsetning
Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SundPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar