

Spennandi starf í nýjum búsetukjarna fyrir fólk með fötlun
Við hjá Velferðarsviði Mosfellsbæjar leitum að öflugum og framsæknum starfsmönnum til liðs við okkur á glænýjum kjarna fyrir fatlað fólk með flóknar stuðningsþarfir. Um fyrsta kjarna þessarar tegundar er að ræða hjá Mosfellsbæ og því frábært tækifæri til að taka þátt í að skapa þetta starf frá upphafi.
Gert er ráð fyrir því að starfsmenn vinni aðra hvora helgi í mánuði. Um er að ræða sólarhringsþjónustu á heimili fólks svo mikill kostur er ef fólk getur unnið fjölbreyttar vaktir.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Karlmenn eru sérstaklega hvattir til þess að sækja um stöðuna
Hlutverk starfsmannsins er að styðja við og veita íbúum aðstoð við daglegar athafnir, félagslega virkni og stuðning til sjálfshjálpar. Við munum veita íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og er markmið okkar að öll fái framúrskarandi þjónustu í nýju umhverfi. Í því felst að aðstoða íbúa við dagleg störf, að halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar- og félagslífs. Unnið verður eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og valdeflingar. Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk nr.38/2018.
· Góð almenn menntun
· Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
· Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
· Þekking á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn kostur
· Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi
· Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður í starfi
· Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
· Góð íslenskukunnátta skilyrði
· Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
· Hreint sakavottorð
Hjá Mosfellsbæ er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinu og ýmis hlunnindi í boði fyrir starfsfólk. Þar má nefna samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk og sundkort.












