Byko
Byko
Byko

Söluráðgjafi í gluggum á fyrirtækjasviði

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að sinna starfi söluráðgjafa á fyrirtækjasviði BYKO.

Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum að einstaklingi með:

  • Þekkingu á byggingaefni - þekking á gluggum kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi - iðnmenntun kostur
  • Ríka þjónustulund
  • Góða tölvukunnáttu - þekking á AX og/eða teikniforritum er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Samviskusemi, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Íslensku- og enskukunnáttu - skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla, tilboðsgerð, sala og ráðgjöf á sérlausnum og sérpöntunum til viðskiptavina
  • Samskipti við erlenda og innlenda birgja
  • Önnur tilfallandi störf

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Lárusson, sölustjóri glugga ([email protected]).

Auglýsing birt31. mars 2025
Umsóknarfrestur13. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar