

Svæðisstjóri Fagaðila - BYKO Suðurnes
BYKO auglýsir eftir svæðisstjóra fagaðila (timbur og lagnadeild) í verslun BYKO á Suðurnesjum. Leitum að öflugum, hressum og duglegum leiðtoga til að aðstoða okkur við að stýra þeim frábæra hópi fólks sem vinnur í BYKO á Suðurnesjum.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Byko opnar nýja og glæsilega verslun í haust á Fitjabraut í Reykanesbæ.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af stýringu hóps
- Þekking og áhugi á byggingarvörum
- Ríka þjónustulund
- Skipulagshæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sala og þjónusta til viðskiptavina
- Ábyrgð á daglegri starfsemi deildanna, mönnun vakta o.fl.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirmann
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnur Magnúsdóttir, ([email protected]) verslunarstjóri.












