
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Sumarstarf BYKO Akureyri
Við hjá BYKO Akureyri erum að leita að öflugum einstaklingum til liðs við okkur í sumar. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Um er að ræða fjölbreytt störf í verslun okkar á Akureyri
Við leitum að starfsfólki með:
-
Ríka þjónustulund
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
-
Áhuga á verslun og þjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Afgreiðsla, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
-
Önnur tilfallandi verkefni
Vinnutími er samningsatriði, BYKO Akureyri er opið 8-18 virka daga og 10-16 á laugardögum. Vaktir eru 8-16 /10-18 á virkum dögum, en 10-16 á laugardögum. Gera má ráð fyrir að vinna 1-2 laugardaga í mánuði allt sumarið.
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2025 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Nánari upplýsingar veitir Egill Snær Þorsteinsson, verslunarstjóri ([email protected]).
Auglýsing birt18. febrúar 2025
Umsóknarfrestur31. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Óðinsnes 2, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sölu- og markaðsstjóri
Menni

Verkstæðismóttaka
KvikkFix

Hlutastarf í áfyllingu fyrir Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Viltu spennandi hlutastarf í úthringingum?
Símstöðin ehf

A4 Egilsstaðir - Hlutastarf
A4

Bílstrjóri hjá mötuneytis fyrirtæki
Sælkeramatur ehf.

Afgreiðsla í Mötuneyti
Sælkeramatur ehf.

Sölufulltrúi í verslun Parka Dalvegi
Parki

Sala og áfylling í verslanir
TINNA EHF

Ert þú reynslumikil og góð sölumanneskja?
Kultur menn

Hlutastarf (Njarðvík)
Just Wingin' it

Sölumaður í stóreldhúsadeild
Danól