Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Þjónustufulltrúi í langtímaleigudeild í Reykjavík

Við leitum eftir jákvæðri og drífandi manneskju í langtímaleigudeild fyrirtækisins. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfsstöðin er í Skútuvogi 8, 104 Reykjavík.

Þínar þarfir - Okkar þjónusta er okkar slagorð og því leitum við eftir starfsfólki með framúrskarandi þjónustulund.

Vinnutími er kl. 8:00-17:00 virka daga og einn laugardagur í mánuði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
  • Útleiga og móttaka á bílum
  • Upplýsingagjöf, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Ferjanir á bílum
  • Fjölbreytt tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskrandi þjónustulund
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf
  • Íslenskukunnátta
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota.  Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum. 

Bílaleiga Akureyrar er fyrsta íslenska bílaleigan til að sérhæfa sig í langtímaleigu til fyrirtækja og einstaklinga. Umfang bílaflotans gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreytta bíla til langtímaleigu og þannig brugðist við ólíkum þörfum viðskiptavina okkar. 

Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður. 

Auglýsing birt8. maí 2025
Umsóknarfrestur13. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skútuvogur 8, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar