

Söluráðgjafi á fyrirtækjasviði
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum söluráðgjafa á fyrirtækjasviði BYKO.
Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Við leitum að starfsmanni með:
- Ríka þjónustulund
- Góða tölvukunnáttu, þekking og notkun á forritum eins AX og Autocad er kostur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Reynslu af sölustarfi, kostur
- Þekkingu á byggingaefni, kostur
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Samviskusemi
- Íslenskukunnáttu, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiðsla, tilboðsgerð, sala og ráðgjöf á sérlausnum og sérpöntunum í byggingarvörum, s.s. klæðningum, einingahúsum, stálgrindarhús og yleiningar o.fl. til viðskiptavina
- Samskipti við birgja
- Önnur tilfallandi störf
Æskilegt væri að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og verður því unnið úr umsóknum jafnóðum.
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Lárusson, sölustjóri ([email protected]) eða Eggert Kristinsson ([email protected]) framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs.












