Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Þjónusta í apóteki - Sumarstörf

Apótekarinn leitar að þjónustulunduðum starfsmönnum til þess að sinna þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina í Sumar.

Vinnutími kl 9/10-18 alla virka daga. Möguleiki á helgarvöktum samhliða starfi yfir sumartímann.

Starfsmenn í sumarstarfi hafa kost á hlutastarfi eftir sumarið sem er t.d tilvalið með námi.

Starfssvið:

-Ráðgjöf til viðskiptavina

-Almenn þjónusta og sala

Hæfniskröfur:

-Reynsla af starfi í apóteki er kostur

-Lyfjatæknimenntun mikill kostur

-Mikil þjónustulund og jákvæðni

-Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði

-Lágmarksaldur er 20 ára

Gert er ráð fyrir að starfsmenn sem starfa í sumarafleysingum séu að leysa af starfsmenn í sumarleyfum, því er mikilvægt að viðkomandi sé ekki með fyrirhugað frí á tímabilinu 15 júní - 15 ágúst.

Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur.

Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.

Auglýsing birt1. apríl 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Helluhraun 4, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar