
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Þjónustufulltrúi í varahlutaverslun og móttöku á Akureyri
Klettur leitar að öflugum og metnaðarfullum þjónustufulltrúa til að ganga til liðs við okkar lið í varahlutaverslun og verkstæðismóttöku á Akureyri. Við erum að leita að einstaklingi sem getur mótað sterk tengsl við viðskiptavini og tekið þátt í að viðhalda mikilli þjónustulund og áreiðanleika í öllum viðskiptum, bæði í móttöku bíla og tækja og í afgreiðslu varahluta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og afhending bíla og tækja eftir þjónustu
- Skráning verkbeiðna og frágangur fyrir reikning
- Upplýsingagjöf um stöðu verka og samskipti við viðskiptavini
- Afgreiðsla og sala varahluta
- Skráning upplýsinga um sölupantanir í upplýsingakerfi og útgáfa reikninga
- Móttaka vörusendinga og tiltekt á lager
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Góð þekking á flutningabílum og vinnuvélum er kostur
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Metnaður og frumkvæði við úrlausn mála
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Afsláttur af vörum félagsins
- Íþróttastyrkur
- Virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt24. apríl 2025
Umsóknarfrestur15. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

N1 Akranesi sumarstarf
N1

Verkstæðismóttaka
Toyota

Söluskoðun
Toyota

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Hlutastarf í ELKO Lindum
ELKO

Bifvélavirki / Car Mechanic
Lava Car Rental

Barþjónn á Brons
Brons

Akureyri: Verkstjóri timbursölu
Húsasmiðjan

Aðstoðarmaður á skrifstofu og bifreiðaverkstæði
Bílaverkstæðið Fram ehf

Reykjanesbær: Leitum að aðila með reynslu af byggingavörum
Húsasmiðjan

Framtíðarstarf á lager (verkstæði) og við útkeyrslu.
NormX

A4 Selfoss - Skemmtilegasta sumarstarfið!
A4