
Nathan hf.
Nathan hefur flutt inn og dreift fjölbreyttu úrvali af vörum frá mörgum af þekktustu framleiðendum heims síðan árið 1912. Nathan byggir á góðu samstarfi við fyrirtæki sem leita eftir gæðavörum og áreiðanlegri þjónustu; hvort sem það eru stórar og smáar verslanir, stóreldhús eða matvælaframleiðendur.
Okkar markmið er að styðja við árangur viðskiptavina okkar með því að einfalda öll aðföng. Hjá Nathan starfar samhentur hópur fólks með mikla sérþekkingu við að tryggja öflugar heildarlausnir í aðföngum þar sem breitt vöruúrval, hagkvæmt verð, traust afgreiðsla og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi.

Sölufulltrúi
Nathan leitar að metnaðarfullum liðsfélaga til að sinna starfi sölufulltrúa hjá smásölusviði. Starfinu getur fylgt merktur bíll til afnota til og frá heimili.
Við leggjum mikla áherslu á að skapa jákvætt starfsumhverfi þar sem öll fá tækifæri til að þróast og vaxa í starfi. Sendu okkur umsókn og sjáðu hvort það verður ekki byrjunin á spennandi ferli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppröðun og eftirfylgni í verslunum
- Almenn vörutékk og trygging á sýnileika okkar vara
- Eftirlit með kynningum og framsetningum
- Eftirfylgni tilboðsplana
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
- Geta til að keyra beinskiptan bíl, gilt ökuskírteini
- Frumkvæði, samskiptahæfni, drifkraftur, jákvæðni og áreiðanleiki
- Góð tölvufærni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt4. nóvember 2025
Umsóknarfrestur11. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 19, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Helgar- og hlutastarf í verslun
BAUHAUS slhf.

Söluráðgjafar H&M - Jólastörf
H&M

Sölufulltrúi í verslun - Fullt starf
Mi búðin

Úthringistarf hjá Tryggingamiðlun Ísland
Tryggingamiðlun Íslands

Selena leitar að starfsmanni í hlutastarf
Selena undirfataverslun

Innkaup- og afgreiðsla
Exton

Sölufulltrúi (e. Sales Representative for Chemical Products Targeting HoReCa)
Hreinlætislausnir Áfangar

Aðstoðarveitingastjóri Saffran Fákafen
Bragðheimar ehf.

Tímabundið starf til jóla - Fullt starf
Líf & List

Söluráðgjafar í söluveri Nova
Nova

Verslunarstörf í ELKO Lindum
ELKO

Starfsmaður í verslun á Akureyri
Hobby & Sport og Mistra