

Útilíf leitar að skíða- og snjóbrettasérfræðingi í fullt- eða hlutastarf
Hefur þú brennandi áhuga á skíðum, snjóbrettum og vetrarútivist?
Útilíf leitar að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í fullt- eða hlutastarf í verslun okkar í Skeifunni, sem hefur góða þekkingu á skíða- og snjóbrettabúnaði og vill miðla henni til viðskiptavina.
Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að vinna með fólki, sinnir þjónustu af alúð og hefur gaman af því að vera í lifandi og fræðandi starfsumhverfi.
Starfið hentar vel með námi eða öðrum verkefnum þar sem sveigjanleiki er í fyrirrúmi.
Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini
Áfyllingar og vöruútstillingar
Önnur tilfallandi verkefni innan verslunarinnar
Áhugi eða reynsla af skíðum og/eða snjóbrettum
Þjónustulipurð, jákvæðni og góð samskiptahæfni
Áreiðanleiki og stundvísi
Getur unnið á virkum dögum og um helgar eftir þörfum
Frábær starfsandi og samheldið teymi
Sveigjanleganleiki Góður starfsmannaafsláttur hjá Útilífi og The North Face Hafnartorgi
Tækifæri til að læra og vaxa innan fyrirtækisins
Íslenska
Enska










