

A4 Skeifan - Hlutastarf
A4 óskar eftir að ráða sölufulltrúa í hlutastarf í verslun okkar í Skeifunni. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa. Vinnutíminn er aðra hvora viku þriðjudaga og fimmtudaga frá kl 16:00 til 22:00.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
- Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
- Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
- Önnur almenn verslunarstörf
Hæfniskröfur og reynsla:
- Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
- Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
- Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
- Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
- Íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjórinn Sigurborg Þóra í síma 580-0090.
A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.
Íslenska










