

Lagerstjóri Útilífs
Við leitum að ábyrgum, skipulögðum og drífandi einstaklingi til að stýra lager Útilífs.
Starfið er fullt starf með reglulegum vinnutíma, mánudaga til föstudaga kl. 8–16.
Um Útilíf
Útilíf á sér stað í hjarta margra Íslendinga þar sem verslunin hefur verið hluti af áhugamálum og lífsstíl landsmanna síðan 1974. Útilíf rekur íþróttaverslun í Kringlunni ásamt útivistarverslun í Skeifunni 11. Þá rekur Útilíf einnig The North Face á Hafnartorgi.
Útilíf er áfangastaður, þar er gott að vera og versla – en er á sama tíma upphaf ævintýra og minninga.
Útilíf leggur áherslu á að vera skemmtilegur og metnaðarfullur vinnustaður sem stuðlar að vexti og ánægju starfsmanna.
-
Dagleg stjórnun á lager og birgðahaldi.
-
Móttaka og afgreiðsla sendinga til og frá birgjum og verslunum.
-
Vöruinnlestur, birgðayfirlit og áfyllingar til verslana.
-
Skipulag og umsjón með lagerhúsnæði og verklagi.
-
Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri lagerins.
-
Reynsla af lagerstörfum er nauðsynleg.
-
Leiðtogahæfni og skipulögð vinnubrögð.
-
Framúrskarandi samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót.
-
Góð tölvukunnátta og reynsla af innslætti í lagerkerfum.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta.
-
Áhugi á útivist og heilbrigðum lífsstíl er mikill kostur.
-
Skemmtilegt og hvetjandi vinnuumhverfi.
-
Frábæran starfsanda og öflugt teymi.
-
Góður starfsmannaafsláttur.
Íslenska
Enska

