

Starfsmaður í verslun - birgðir og sítalning BYKO Suðurnesjum
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur tímabundið starf til eins árs í utanumhald með birgðum og framkvæmd sítalninga í verslun BYKO Suðurnesjum. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími: Alla virka daga frá kl. 08:00-16:00 og þriðja hverja helgi frá kl. 10:00-16:00.
Við leitum að einstaklingi með:
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Getu til að vinna sjálfstætt
- Ríka þjónustulund
- Íslenskukunnáttu í ræðu og riti
- Góða tölvukunnáttu og hæfni til að tileinka sér notkun á nýjum kerfum
- Reynslu af utanumhaldi með birgðum og talningum, kostur
- Þekkingu á vörum BYKO, kostur
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Undirbúningur og framkvæmd sítalninga
- Eftirvinnsla talninga s.s. uppfæra birgðastöðu
- Umbætur á merkingum og framsetningu á vörum m.t.t. talninga
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnur Magnúsdóttir, verslunarstjóri ([email protected]).
Íslenska










