

Starfsmaður í timburafgreiðslu - BYKO Suðurnesjum
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í timburafgreiðslu BYKO Suðurnesjum. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er aðra hverja viku frá kl. 08:00-16:00 og hina vikuna frá kl. 10:00-18:00. Unnið er þriðja hverja helgi frá kl. 10:00-16:00.
Við leitum að starfsmanni með:
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Lyftarapróf, kostur
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Bílpróf, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn afgreiðslu og lagerstörf
- Móttaka og frágangur á vörum
- Almenn þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember en unnið er úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnur Magnúsdóttir, verslunarstjóri ([email protected]).
Íslenska










