

Snjöll mælaumsjón á Austurlandi - viltu mæla með okkur?
Við leitum að nákvæmri og þjónustulundaðri manneskju í mælaumsjón á Austurlandi. Ef þú býrð yfir góðri tæknifærni, elskar að læra nýja hluti og hefur getu til að vinna sjálfstætt þá ættir þú að kíkja nánar á þetta!
Mælaumsjónarfólkið okkar starfar náið með rafverktökum og viðskiptavinum Rarik. Þau vinna að mælauppsetningum, mælaskiptum og niðurtökum eldri mæla og sjá um að vakta þjónustubeiðnir í gegnum HMS gátt. Einnig þarf mælaumsjónarfólk að framkvæma úttekt á frágangi heimtauga við tengingu og í rekstri til að tryggja að þær séu í samræmi við tengiskilmála og reglur Rarik. Umsjón mæla fylgir einnig gagnavinnsla og verkundirbúningur. Bæði er um vinnu á skrifstofu og á vettvangi að ræða og hægt er að velja milli starfsstöðva okkar á Egilsstöðum eða Reyðarfirði.
Rétta manneskjan í starfið er með sveinspróf í rafvirkjun og þekkir vel tæknilega tengiskilmála rafveitu (TTR) og kröfur HMS þegar kemur að rafmagnsöryggi. Bílpróf er algjör nauðsyn til að geta sinnt þessu starfi. Hér gildir að hafa góða skipulagshæfileika til að geta planað daginn vel, geta unnið sjálfstætt og að búa yfir samskiptahæfni og þjónustulund til að geta veitt viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Við leitum einnig sérstaklega að fólki sem er fróðleiksfúst og getur haft frumkvæði að því að sinna margvíslegum verkefnum.
Íslenska










