

Tengdu þig við okkur! Sumarstarf í hönnun og afgreiðslu heimlagnaumsókna
Við leitum að drífandi nemum í rafmagnstengdum greinum sem eru tilbúnir að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og kynnast dreifikerfi RARIK í sumar. Ef þú ert rafmagnsnörd með samskiptaforritið í lagi og hefur grunnþekkingu á almennri rafvirkjun þá ert þú rétta manneskjan í starfið.
Sumarstarf í heimlagnateymi RARIK felur í sér spennandi áskoranir fyrir nemendur rafmagnstækni-, rafmagnsverkfræði- og rafiðnfræði, eða nema í rafvirkjun, sem vilja komast í kynni við stóra dreifiveitu þar sem sinna þarf fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum. Helstu verkefni heimlagnateymis eru afgreiðsla heimlagnaumsókna, hönnun heimlagna, skráning og eftirfylgni með verkbeiðnum og samskipti við viðskiptavini okkar og rafverktaka.
Rétta manneskjan í starfið hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum og getur mætt þörfum og kröfum viðskiptavina okkar með því að sýna frumkvæði og metnað. Við leitum að nemum í hvers kyns rafmagnstengdum greinum, s.s. rafmagnsverkfræði, rafmagnstæknifræði eða rafiðnfræði.Góð tölvukunnátta er mikilvæg sem og áhugi á því að veita framúrskarandi þjónustu og taka þátt í þriðju orkuskiptunum með okkur.
Íslenska










