Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtilegasti íbúðakjarni Reykjavíkur vantar starfsfólk

Heimilið Jöklasel vantar flott starfsfólk inn í starfsmannahópinn. Á heimilinu býr fólk með einhverfu. Allir dagar hafa upp á eitthvað nýtt að bjóða og eru engir dagar eins. Mikið umbótarstarf hefur átt sér stað í starfseminni í Jöklaseli þar sem markmiðið er að veita framúrskarandi þjónustu við íbúa. Unnið er á blönduðum vöktum og er starfshlutfall eftir samkomulagi.

Jöklasel er þekkt fyrir góðan móral og samheldinn starfsmannahóp sem tekur vel á móti nýju fólki!

Starf í Jöklaseli veitir frábæra reynslu fyrir framtíðarstörf á vinnumarkaði og lítur einstaklega vel út á ferilskrá.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stuðningur og aðstoð við íbúa við allar athafnir daglegs lífs.

Stuðningur og aðstoð sem gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. Í Jöklaseli starfar frábær og kraftmikill hópur starfsfólks og einkennist vinnustaðurinn af gleði og jákvæðni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Reynsla af tákn með tali.
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Gerð er krafa um bílpróf.
Auglýsing birt26. mars 2024
Umsóknarfrestur15. apríl 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar