

Sérkennslustjóri í Óskalandi Hveragerði
Leikskólinn Óskaland verður 9 deilda leikskóli frá og með hausti 2025 með 140- 160 börn á aldrinum 1.- 5 ára. Auglýst er eftir sérkennslustjóra til starfa í 100 % stöðu. Leitað er að lausnamiðuðum og ráðagóðum einstaklingi með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.
Í leikskólanum Óskalandi er leikurinn meginnámsleið barnsins, aðalkennsluleið kennarans og þungamiðja leikskólastarfsins. Börnin fá tækifæri til að leika sér á eigin forsendum, læra á umhverfi sitt, tjá tilfinningar og þróa félagsleg tengsl við önnur börn og kennara. Í öllum leik vinna börn með hugmyndir sínar og öðlast jafnframt nýja þekkingu og færni. Í leik eflist þroski barna, bæði líkamlegur og andlegur.
Einkunnarorð Óskaland eru: Leikur, lífsgleði og lærdómur
Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati stoðþjónustunnar í leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
• Vinnur að einstaklingsnámskrá barna sem á þurfa að halda
• Er faglegur umsjónarmaður stoðþjónustunnar í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans
• Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta stoðþjónustu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim
• Stýrir stoðþjónustuteymi leikskólans
• Er tengiliður leikskólans við ýmsa fagaðila utan leikskólans
• Er tengiliður leikskólans í þjónustu í þágu farsældar barna skv. lögum nr. 86/2021 og tekur þátt í þróun og innleiðingu laganna
• Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða önnur sambærile menntun sem nýtist í starfi
• Æskilegt er að umsækjandi hafi framhaldsmenntun í sérkennslufræðum eða öðru því sem nýtist í starfi
• Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á lögum um farsæld barna
• Reynsla af stjórnun er æskileg
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Reynsla í starfi með leikskólabörnum
• Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
• Sundkort
• Stytting vinnuvikunnar













