Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildarstóra
  • Vinna að faglegu starfi deildar
  • Tekur þátt í foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
  • Frumkvæði, góð samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Á Holtakoti er 36 stunda vinnuvika. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
  • Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
Auglýsing birt8. maí 2025
Umsóknarfrestur21. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar