Sérkennari/þroskaþjálfi - Leikskólinn Víðivellir
Leikskólinn Víðivellir auglýsir eftir sérkennara/þroskaþjálfa í fullt starf, starfið er laust nú þegar eða með samkomulagi.
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstakling til þess að bætast í sérkennsluteymi leikskólans. Í sérkennsluteyminu starfa 3-5 þroskaþjálfar/sérkennarar undir handleiðslu sérkennslustjóra. Auk þess mun viðkomandi sinna hlutverki tengiliðar farsældar á Víðivöllum. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra og er skólinn í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.
Upplýsingar um leikskólann er hægt að sjá á heimasíðu Hafnarfjarðar: Víðivellir | Leikskólar í Hafnarfirði
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að uppeldi og menntun barns/barna með sérþarfir þar með talið að skipuleggja sérkennslu viðkomandi í samvinnu við sérkennslustjóra og deildastjóra.
- Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir það barn/börn sem hann er með í stuðning
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn þess barns/barna sem hann er með í stuðning
- Er leiðbeinandi fyrir annað starfsfólk varðandi stuðning við nemendur með sérþarfir
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni sem sérkennslustjóri og eða yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn) eða háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Færni í samskiptum og samstarfshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Fáist ekki sérkennari/þroskaþjálfi til starfsins, kemur til greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veitir Svanhildur Birkisdóttir leikskólastjóri, svanhildurbi@hafnarfjordur.is og Eyrún Edvardsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, eyrune@hafnarfjordur.is í síma 555-3599.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 19.nóvember 2024
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.