Skóla- og frístundaliði - Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliði í Skarðshlíðarskóla frá 1. janúar 2025
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða í 60 til 100% starfshlutfall til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
· Tekur á móti nemendum á morgnana
· Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
· Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
· Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og salernum snyrtilegum yfir daginn
· Starfar með nemendum með sértæka vanda
· Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Reynsla af starfi með börnum er æskileg
· Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
· Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
· Stundvísi og samviskusemi
· Mjög góð íslenskukunnátta
· Almenn tölvukunnátta
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871/ ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.