Leikskóla- og frístundaliði - Heilsuleikskólinn Hamravellir
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann í fullt starf.
Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.
Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að uppeldi og menntun barna á leikskóla undir leiðsögn og stjórn deildarstjóra og stjórnenda leikskóla.
- Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í leikskóla- og frístundastarfi innan leikskólans og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skóladagsins.
- Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í og kemur að hugmyndavinnu og skipulagi á tómstunda- og frístundastarfi innan leikskólans.
- Aðstoðar börn á matmálstímum og sinnir undirbúningi og frágangi.
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðalnámskrá leikskóla.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af uppeldis- eða kennslustörfum æskileg
- Reynsla af sambærilegum störfum í leikskóla kostur
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Bókasafnskort
- Sundkort
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur í leikskóla
- Stuðningur til menntunar
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Jakobsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, helgaj@hafnarfjordur.is eða í síma 424-4640.
Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.