Arabískumælandi ráðgjafi í menningarmiðlun (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir arabískumælandi ráðgjafa í menningarmiðlun (Brúarsmið).
Á skrifstofu mennta og lýðheilsusviðs hjá Hafnarfjarðarbæ starfar fagfólk úr ýmsum fagstéttum að veitingu þjónustu til leik- og grunnskóla, dagforeldra, frístundaheimila og tónlistarskóla í Hafnarfirði auk þess að annast stjórnsýslumálefni þeirra hjá sveitarfélaginu.
Markmið starfsins er að fræða, veita stuðning og ráðgjöf við foreldra og kennara vegna barna af erlendum uppruna í leikskólastarfi.
Um er að ræða 35% stöðu tímabundið til 1 árs.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Efla starfsfólk í leikskólum í vinnu sinni með börnum af erlendum uppruna
- Efla starfsfólk í leikskólum í fjölmenningarlegum vinnubrögðum og fjöltyngi
- Fræða starfsfólk í leikskólum um ólíka menningu og tungumál barna af erlendum uppruna
- Styðja foreldra af erlendum uppruna í samskiptum við leikskóla
- Veita erlendum foreldrum ráðgjöf varðandi skólastarf og fræða um hlutverk íslenskra foreldra í leikskóla
- Efla virkt tvítyngi/fjöltyngi barna í leikskólastarfi
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BA/BS/B.Ed. gráða í mennta – eða félagsvísindum
- Reynsla og þekking á leikskólastarfi
- Reynsla af starfi með börnum af erlendum uppruna
- Kunnátta í arabísku
- Þekking á málfefnum fjöltyngdra barna
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Frumkvæði og færni í samskiptum
- Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, Þróunarfulltrúi leikskóla, jenny@hafnarfjordur.is, sími: 5855500
Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.