

Sérhæfður aðstoðarmaður á bráðalyflækningadeild
Bráðalyflækningadeild óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan sérhæfðan aðstoðarmann í fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni. Unnið er aðra hverja helgi. Starfið er laust frá 1. desember eða eftir samkomulagi.
Bráðalyflækningadeild A-2 er 20 rúma legudeild sem tilheyrir lyflækningasviði og er staðsett á 2. hæð á Landspítala í Fossvogi. Deildin er ætluð sjúklingum með afmörkuð bráðavandamál sem falla undir almennar lyflækningar og eru viðfangsefnin mjög fjölbreytt. Sjúklingar koma aðalega frá bráðamóttöku en einnig frá dag og göngudeildum Landspítala. Á deildinni starfar samhentur og áhugasamur hópur ýmissa starfsstétta s.s læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarritarar og sérhæfðir starfsmenn, auk annara stoðstétta sem koma eftir þörfum ss. sjúkra- og iðjuþjálfar, næringafræðingar, talmeinfræðingar, félagsráðgjafar ofl.












































