Sérfræðingur í öryggismálum
Norðurál leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf sérfræðings í öryggismálum en starfið heyrir undir öryggis-, umhverfis- og umbótasvið fyrirtækisins.
Verkefnin eru fjölbreytt í umhverfi þar sem stöðugar umbætur eru hafðar að leiðarljósi. Sérfræðingur í öryggismálum mun vinna með og eftir atvikum hafa umsjón með lykilferlum áhættustýringar og vinna náið með starfsfólki þvert á fyrirtækið þegar kemur að fræðslu og úrbótum í öryggismálum.
Norðurál hefur öryggi og heilbrigði í fyrirrúmi. Mikilvægt er að starfsfólk þekki áhættur og örugg vinnubrögð og að ekkert verk eigi að vinna við ótryggar aðstæður. Áhersla er lögð á virka þátttöku starfsfólks í forvörnum og umbótum. Hjá öryggisdeild Norðuráls vinnur hópur fulltrúa og sérfræðinga sem eru m.a. sérhæfð í áhættumati, áhættustjórnun og atvikarannsóknum. Öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins byggir á hugmyndafræði stöðugra umbóta og er vottað gagnvart ISO stöðlum.
· Umsjón með lykilferlum öryggismála og umbótum á ferlum, s.s. áhættustýringu og atvikarannsóknum
· Vinna að stöðugum úrbótum í öryggismálum með áherslu á áhættugreiningu starfa
· Vinnsla og greining gagna
· Leiða atvikarannsóknir á frávikum
· Þjálfun og fræðsla í öryggismálum
· Tryggja að vinnuaðstæður, búnaður og verklag sé í samræmi við öryggisstaðla
· Samskipti við Vinnueftirlitið
· Samskipti við Sjúkratryggingar Íslands
· Háskólamenntun á sviði verkfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
· Þekking og reynsla af öryggismálum
· Kunnátta á vottuðum stjórnkerfum, uppsetningu ferla og umbótastarfi
· Rík öryggis- og umhverfisvitund
· Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
· Hæfni í mannlegum samskiptum